Gistiheimilið er staðsett í fögru og friðsælu umhverfi á Mjóeyri.
Stórkostlegt útsýni er út Reyðarfjörð, inn Eskifjörð, yfir Hólmanes og Hólmatind.
Lögð er áhersla á hlýlegt og heimilislegt andrúmsloft.

Gistihúsið Mjóeyri

Gistiheimilið er rétt utan við þéttbýlið við Eskifjörð

Ferðaþjónustan á Mjóeyri er lítið fjölskyldufyrirtæki í eigu hjónanna Sævars Guðjónssonar og Berglindar Ingvarsdóttur.
Gistiheimilið er staðsett í fögru og friðsælu umhverfi á Mjóeyri, rétt utan við þéttbýlið við Eskifjörð.

Húsið er nýlega innréttað, var byggt árið 1895 og ber merki gamalla og nýrra tíma. Lögð er áhersla á hlýlegt og heimilislegt andrúmsloft.

Stórkostlegt útsýni er út fjórum, eins tiltveggja manna herbergjum með sameiginlegum eldhúskrók, setustofu með sjónvarpi og góða hreinlætissaðstöðu. Útvarp og sjónvarp er í öllum herbergjum. Reyklaust umhverfi er innandyra. Stór sólpallur er við innganginn á neðri hæð og þaðan er einnig gengið inn í svefnskála með svefnpokaplássi. Í svefnskálanum er eldunar- og hreinlætisaðstaða. Á sólpallinum er stórt gasgrill sem gestum er frjálst að nota.

Á Mjóeyri er einnig baðhús, með þvottaaðstöðu, klósettum, sturtum, sauna og heitum potti.  

Upplýsingar

Heimilisfang Strandgata 120
Staður 735 Eskifjörður
Netfang mjoeyri@mjoeyri.is
Sími +354 477 1247
Vefur Sjá vefsíðu