17. júní 2023 í Fjarðabyggð

13.06.2023

Sú hefð hefur skapast að hátíðahöld vegna 17. júní færast á milli bæjarkjarna. Að þessu sinni verður haldið upp á 17. júní á Reyðarfirði í samvinnu við Ungmennafélgið Val. Dagskrá dagsins má finna hér að neðan.

8:00

Fánar dregnir að húni.

Íbúar eru hvattir til að draga fána að húni á flaggstöggnum sínum.           

14:00 – 16:00

Hátíðardagskrá á svæðinu við Grunnskóla Reyðarfjarðar

Fjölbreytt dagskrá á hátíðarsvæðinu sem verður staðsett á svæðinu aftan við Grunnskóla Reyðarfjarðar og íþróttamiðstöðina.

Þar verður m.a. í boði:

  • Karitas Harpa stjórnar dagskránni og flytur nokkur lög
  • Hátíðarræða
  • Ávarp fjallkonu
  • Leikskólakórinn syngur

Að lokinni dagskrá á sviði tekur við mikil gleði á svæðinu þar sem hægt verður að finna sér ýmisilegt að gera:

  • Vatnsrennibraut (ef veður leyfir – gott að hafa aukaföt meðferðis)
  • Andlitsmálun
  • Skapandi sumarstörf verða á svæðinu
  • Veitingasala
  • Gullgrafaraleikur
  • Allskonar leikir og skemmtun

Íbúar eru hvattir til að mæta á Reyðarfjörð á laugardaginn, veðurspáin fyrir helgina er afar góð og um að gera að koma við á Reyðarfirði og njóta dagsins

Gleðilega þjóðhátíð!