Ármótabrennur í Fjarðabyggð

30.12.2022

Fjarðabyggð stendur fyrir áramótabrennum á gamlárskvöld og verður kveikt í þeim stundvíslega kl. 17.00 á efirfarandi svæðum:

Neskaupstaður – Utan við flugvöllinn á Norðfirði

Eskifjörður – Á malarsvæði móts við þorpið (staðsetning gæti breyst vegna fannfergis)

Reyðarfjörður – Hrúteyri

Fáskrúðsfjörður – Sævarendi/Fjöruborð

Stöðvarfjörður – Á melseyri ofan Birgisnes

Breiðdalsvík – Malarsvæði sunnan við gámavöll

Athugið að brennurnar er auglýstar með fyrirvara um að veður verði í lagi en fari vindur yfir 10 m/sek er óheimilt að halda brennu.

Brennugestir eru minntir á hlífðargleraugun og að óheimilt er að skjóta upp flugeldum og blysum við brennur.

Fari svo að aflýsa þurfi brennum eða breyta staðsetningu vegna veðurs verður það tilkynnt sérstaklega á heimasíðu Fjarðabyggðar og á FB síðu bæjarins.

Sjáumst sem flest í hátíðarskapi á gamlárskvöld🎉