Nanna - How to start a garden í Egilsbúð á Tónaflugi

11.11.2023 - 11.11.2023

Klukkan 21:00

05.09.2023

Það verður sannkallaður stórviðburður í Egilsbúð og Austurlandi öllu þegar tónlistarkonan Nanna, sem hefur skapað sér nafn með hljómsveitinni Of Monsters and Men, mætir ásamt hljómsveit sinni en framundan er tónleikaferð í Evrópu.

Nanna fetaði ótroðnar slóðir í vor þegar hún gaf út sína fyrstu sólóplötu. Plata hennar, How to Start a Garden, kom út í maí við frábærar undirtektir og fagnaði Nanna útgáfu hennar þegar hún spilaði fyrir fullu húsi í Bæjarbíó í sumar. How to Start a Garden var síðan fylgt eftir með tónleikaferðalagi í Bandaríkjunum þar sem hún kom fram ásamt einvalaliði tónlistarfólks. Þann 11. nóvember mun hún heimsækja Egilsbúð og spila lög af plötunni og hver veit nema áhorfendur fái einnig að heyra nýtt efni.
Eins og fyrr segir kemur Nanna fram ásamt frábærri hljómsveit sinni en hana skipa:
Bjarni Þór Jensson: Gítar/söngur
Magnús Tryggvason Eliassen: Trommur/slagverk
Rakel Sigurðardóttir: söngur/fiðla
Tómas Jónsson: Hljómborð
Það er mikill heiður að bjóða Nönnu og hljómsveit hennar velkomna í Egilsbúð. How to Start a Garden er tilkomumikið upphaf á nýju sólóverkefni Nönnu og mega tónleikagestir eiga von á einstakri upplifun með þessari heillandi tónlistarkonu.
👉 Miðasala hefst á Tix fimmtudaginn 7. september. Miðaverð er 6500kr.
Tónleikarnir reka smiðshöggið á frábært Tónaflug ársins en Tónaflug í Neskaupstað er samstarfsverkefni SÚN, Hildibrand og Menningarstofu Fjarðabyggðar.